Sigríður

Sigríður

Forsíða

 

Fréttir

Innsetning nýrrar stjórnar.

Næsti fundur stúkunnar verður haldinn þriðjudaginn 31. janúar kl. 19:00 á  3. hæð.  Innsetning embættismanna.



Gjöf til Ljóssins.

U.M. Diljá Margrét Gústafsdóttir afhenti gjöfina.

Ljósið, endurhæfingar-  og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra, eignaðist sitt eigið húsnæði að Langholtsvegi 43, þann 19. október sl.  Af því tilefni mættu nokkrar Sigríðarsystur á hátíð sem haldin  var 26. október  og afhentu  gjafabréf að upphæð kr. 2.500.000.-   Erna Magnúsdóttir forstöðukona Ljóssins  tók við gjöfinni úr hendi UM Diljá Margrétar Gústafsdóttur.

 


Hjúkrunarheimilið Grund fær lyftubúnað að gjöf.


Að ósk Sigríðarsystra var búnaðurinn settur upp á deild A-2 þar sem ein Sigríðarsystir, Íris Ingibergsdóttir er heimiliskona. Mun hún njóta góðs af lyftubúnaðinum ásamt öðrum heimilismönnum á A-2 og víst er að slíkur búnaður mun létta undir með starfsfólki heimilisins.

 


Hjúkrunarheimilinu Eir færð gjöf.


Stjórn stúkunnar  ásamt systrum í líknarsjóðum stúkunnar,  færðu  hjúkrunarheimilinu Eir dýnur að gjöf.

Lesa meira

Styrkur til Umhyggju.



Það voru systur í stjórn minningarsjóðs Ástu Jónsdóttur og stjórn stúkunnar sem afhentu Rögnu Marinósdóttur framkvæmdastjóra Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum styrk, að upphæð kr. 1.500.000, þann 18. desember sl.


Á næstunni

Mynd augnabliksins

Dagatal

« Janúar 2012 »
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031 

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf